Héraðsskjalasöfnin

Héraðsskjalasöfnin

Héraðsskjalasöfn á Íslandi eru átján. Þau starfa skv. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn og reglugerð nr. 283/1994 um héraðsskjalasöfn. Þau eru sjálfstæðar skjalavörslustofnanir á vegum sveitarfélaga og lúta faglegu eftirliti Þjóðskjalasafns Íslands.

Hlutverk héraðsskjalasafna er í meginatriðum fjórþætt, þ.e. viðtaka skjala afhendingarskyldra aðila og einkaaðila, skráning og aðgengi að safngögnum bæði á rafrænum formi og á pappír, eftirlit og ráðgjöf með skjalahaldi afhendingarskyldra aðila og miðlun og rannsóknir á safngögnum.