Hér að neðan eru nánari upplýsingar um MHR, samstarf við NEA og klasasamstarf.
- Stefán Bogi Sveinsson, framkvæmdastjóri
- Sólborg Una Pálsdóttir, ritari
- Þorsteinn Tryggvi Másson, gjaldkeri
Miðstöðin tryggir að hvert héraðsskjalasafn geti tekið við tilkynningum um rafræn gagnasöfn, tekið á móti rafrænum vörsluútgáfum og veitt aðgengi að rafrænum gögnum sveitarfélaga.
Eitt af meginmarkmiðum MHR er að byggja upp nauðsynlega fagþekkingu starfsfólks héraðsskjalasafna á langtímavörslu rafrænna gagna í samræmi við gildandi lög, reglur og staðla sem stuðst er við.
Héraðsskjalasöfnin nýta sameiginlega stærðarhagkvæmni vegna móttöku og prófana á samskonar gagnasöfnum. Sameiginlegt móttökuver og jafnt aðgengi allra að tækniráðgjöf lækkar kostnað.
Hýsing tekur mið af kröfum einstakra héraðsskjalasafna en fylgir um leið kröfum ISO 27001. Hvert héraðsskjalasafn er ábyrgt fyrir hýsingu á afhendingarskyldum gagnasöfnum þeirra sveitarfélaga sem það reka. Þá er horft til ýmissa annarra þátta vegna gagnaöryggismála.


