MHR notar OAIS Open Archival Information System (ISO 14721) staðalinn/viðmiðunarlíkanið vegna móttöku, langtímavörslu og miðlunar á upplýsingum úr rafrænum gagnasöfnum sveitarfélaga, stofnanna og einkaaðila. Eitt af meginmarkmiðun OAIS er að samræma og staðla kröfur sem gerðar eru til uppbyggingar rafrænna gagnasafna, langtíma vörslu þeirra og aðgengis að gögnunum. OAIS styður einnig við þróun viðbótarstaðla fyrir rafræna varðveislu.
Þá er einnig stuðst við ISAD-G (General International Standard Archival Description), ISAAR (CPF), (International Standard Archival Authority Record For Corporate Bodies, Persons And Families, 2nd edition) og ISDIAH (International Standard For Describing Institutions With Archival Holdings). Notkun og hlíting staðla er mikilvægur þáttur í að tryggja að myndun, langtímavarsla, aðgengi og leitarbærni standist kröfur og að áreiðanleiki rafrænna gagna séu tryggður eins og kostur er.
Í sinni einfjöldustu mynd er OAIS líkanið þrískipt.

Gagnamyndari er sá aðili/aðilar sem mynda/búa til þau rafrænu gögn sem á að varðveita.
Stjórnun er hlutverk þess aðila, (héraðsskjalasafns/umsjónaraðila) sem tryggir hlítingu OAIS staðalsins, umsjón með gagnasafninu eftir afhendingu en ekki dagsdaglegan rekstur gagnasafns sem verið er að setja gögn í. Stjórnun er í umsjón héraðsskjalasafns sem tryggir viðhald og langtíma vörslu gagnasafnsins og aðgengi notanda að gagnasafninu.
Notandi er sá aðili sem hefur samskipti við stjórnun/umsjónaraðila til að finna eða leita eftir upplýsingum/gögnum sem eru hluti af gagnasafninu. Notandi setur fram leitarskilyrði og kallar eftir gögnum sem héraðsskjalasafn/umsjónaraðili veitir aðgang að. Notandi getur verið opinber aðili eða einkaaðili.
Það er samráðsnefnd um geimgagnakerfi CCSDS (The Consultative Committee for Space Data Systems) sem er fjölþjóðlegur vettvangur fyrir þróun samskipta- og gagnakerfastaðla fyrir geimflug sem hannaði staðalinn.


