Um MHR

Upplýsingar um NEA

NEA (Netværket elektronisk arkivering) er samstarfsverkefni 32 sveitarfélaga í Danmörku. NEA er hluti af Borgarskjalasafni Kaupmannahafnar (Københavns Stadsarkiv) og er starfsfólk NEA starfsfólks Borgarskjalasafns Kaupmannahafnar. Starfsfólk NEA hefur áratuga reynslu af móttöku, prófunum og afgreiðslu úr rafrænum gagnasöfnum sveitarfélaga.

Samstarf NEA og MHR

Markmið NEA er að tryggja rafrænt skjalahald, vörslu rafrænna gagna og aðgengi að rafrænum skjalasöfnum og nýta samstarfsvettvanginn til að byggja upp sérþekkingu hjá hverju skjalasafni. Héraðsskjalasöfnin hafa undirritað samning við NEA en með samningnum fæst einnig aðgangur að verkfærakistu NEA s.s. aðgangur að hugbúnaði til að halda utan um kortlagningu rafrænna gagnasafna og prófanir á vörsluúgáfum.

Sama regluverk

Regluverk vegna tilkynninga og móttöku á rafrænum gagnasöfnum opinberra aðila á Íslandi fylgir reglusetningu Danska ríkisskjalasafnsins (Statens Arkiver) og af þeim sökum er skynsamlegt að vera í samstarfi við dönsk sveitarfélög um kortlagningu, tilkynningar og tilhögun skila á rafrænum gagnasöfnum.

Ráðgjöf NEA

NEA skipuleggur fundi, námskeið og leiðbeinir starfsfólki vegna þeirra fjölmörgu verkefna sem tengjast rafrænni skjalavörslu, allt frá kortlagningu rafrænna gagnasafna, fyrirlestra um lagaumhverfi, tilhögun afhendinga, hvernig vörslu er best háttað, uppbygging gagnagrunna eða uppsetningu á rafrænni/stafrænni gagnageymslu.