Héraðsskjalasöfnin starfa eftir lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn og reglugerð um héraðsskjalasöfn nr. 283/1994. Fjöldi annarra laga og reglna tengjast starfsemi safnanna, móttöku, vörslu og miðlun rafrænna gagnasafna afhendingarskyldra aðila á sveitarstjórnarstiginu.
Reglurnar kveða á um með hvaða hætti afhendingarskyldir aðilar, sem falla undir stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga skuli haga skjalavörslu og skjalastjórn, hvernig frágangi og afhendingu á skjala- og gagnasöfnum til opinberra skjalasafna skuli háttað og um varðveislu og förgun skjala. Sveitarfélög og stofnanir þeirra skulu haga skjalahaldi og skjalavörslu með þeim hætti sem segir í þessum reglum.
Gildandi lög og reglur um skjalavörslu og skjalastjórn
Lög og reglugerð
- Lög um opinber skjalasöfn (nr.77/2014)
- Upplýsingalög (nr. 140/2012)
- Sveitarstjórnarlög (nr. 138/2011)
- Stjórnsýslulög (nr. 37/1993)
- Reglugerð um héraðsskjalasöfn (nr. 283/1994)
Reglur
- Reglur um tilkynningu, samþykkt og skil á rafrænum gagnasöfnum afhendingarskyldra aðila (nr. 877/2020)
- Reglur um afhendingu á vörsluútgáfum gagna úr rafrænum gagnakerfum afhendingarskyldra aðila (nr. 100/2014)
- Reglur um varðveislu og eyðingu skjala úr fjárhagsbókhaldi afhendingarskyldra aðila (nr. 1022/2023)
- Reglur um eyðingu prófúrlausna og metinna námsmatsgagna hjá afhendingarskyldum aðilum (nr. 913/2021)
- Reglur um meðferð, varðveislu og eyðingu á tölvupóstum afhendingarskyldra aðila (nr. 331/2020)
- Reglur um skráningu mála og málsgagna afhendingarskyldra aðila (nr. 85/2018)
- Reglur um frágang, skráningu og afhendingu pappírsskjalasafna og afhendingu afhendingarskyldra aðila (nr. 573/2015)
- Reglur um málalykla afhendingarskyldra aðila (nr. 572/2015)
- Reglur um skjalavistunaráætlanir afhendingarskyldra aðila (nr. 571/2015)
- Reglur um grisjun í skjalasöfnum sveitarfélaga og stofnana þeirra (nr. 627/2010)


