Stafræn þróun er eitt af stóru verkefnum sveitarfélaga á næstu árum. Verkefnið er í raun samheiti fyrir fjölda stórra og lítilla verkefna sem tengjast notkun á tölvutækni, gervigreind, þróun hugbúnaðar o.fl. sem er ætlað að bæta enn frekar þjónustu sveitarfélaga við íbúa óháð opnunartíma. Á sama tíma verða til rafræn gagnasöfn sem sveitarfélögin geta nýtt til að fá betri yfirsýn yfir þá fjölmörgu málaflokka sem þau sinna, s.s. velferðarmál, skóla- og fræðslumál, skipulags- og byggingamál.
-
Nánar um rafræna skjalavörslu
Stafrænar lausnir geta tryggt ákveðið samræmi í ákvarðanatöku, stutt við jafnræði milli íbúa ásamt því að auka skilvirkni í stjórnsýslunni. Samhliða fjölgun stafrænna lausna hefur rafrænt gagnamagn sveitarfélaga aukist til muna og kallar það á varðveislumat þessara gagna m.t.t. langtímavarðveislu rafrænna gagnasafna. Aukin myndun rafrænna gagna tengist með beinum hætti fjölgun íbúa og aukinni þjónustu […]
-
OAIS staðallinn
MHR notar OAIS Open Archival Information System (ISO 14721) staðalinn/viðmiðunarlíkanið vegna móttöku, langtímavörslu og miðlunar á upplýsingum úr rafrænum gagnasöfnum sveitarfélaga, stofnanna og einkaaðila. Eitt af meginmarkmiðun OAIS er að samræma og staðla kröfur sem gerðar eru til uppbyggingar rafrænna gagnasafna, langtíma vörslu þeirra og aðgengis að gögnunum. OAIS styður einnig við þróun viðbótarstaðla fyrir rafræna varðveislu. […]
-
Hugtakaskýringar
Hér að neðan eru skýrð nokkur helstu hugtök sem notuð eru í umfjöllunum rafræna skjalavörslu.


