Miðstöð héraðsskjalasafna um rafræna skjalavörslu er samstarfsverkefni héraðsskjalasafnanna. MHR er ætlað að einfalda skil á rafrænum gagnasöfnum sveitarfélaga, styðja við hlítingu reglna, auðvelda ráðgjöf og samræmingu verkferla. Hlutverk miðstöðvarinnar er að stýra verkefninu og tryggja að rafræn gagnasöfn sveitarfélaga og einkaaðila séu varðveitt og gerð aðgengileg.
-
Nánar um MHR
Hér að neðan eru nánari upplýsingar um MHR, samstarf við NEA og klasasamstarf. Framkvæmdastjórn Aðstoð við stafræna umbreytingu Miðstöðin tryggir að hvert héraðsskjalasafn geti tekið við tilkynningum um rafræn gagnasöfn, tekið á móti rafrænum vörsluútgáfum og veitt aðgengi að rafrænum gögnum sveitarfélaga. Uppbygging sérþekkingar Eitt af meginmarkmiðum MHR er að byggja upp nauðsynlega fagþekkingu starfsfólks […]
-
Upplýsingar um NEA
NEA (Netværket elektronisk arkivering) er samstarfsverkefni 32 sveitarfélaga í Danmörku. NEA er hluti af Borgarskjalasafni Kaupmannahafnar (Københavns Stadsarkiv) og er starfsfólk NEA starfsfólks Borgarskjalasafns Kaupmannahafnar. Starfsfólk NEA hefur áratuga reynslu af móttöku, prófunum og afgreiðslu úr rafrænum gagnasöfnum sveitarfélaga. Samstarf NEA og MHR Markmið NEA er að tryggja rafrænt skjalahald, vörslu rafrænna gagna og aðgengi […]
-
Klasasamstarf héraðsskjalasafna
Héraðsskjalasöfnunum er skipt í þrjá klasa, þ.e. Suður- og suðvesturklasa, Vestur- og norðvesturklasa og Norðaustur- og austurklasa. Tvö söfn innan hvers klasa skuldbinda sig til að vera leiðandi í samstarfi hvers klasa og veita öðrum héraðsskjalasöfnum leiðbeiningar og ráðgjöf um móttöku og skil á rafrænum gagnasöfnum eftir því sem við á. Hlutverk hvers klasa er […]
-
Héraðsskjalasöfnin
Héraðsskjalasöfn á Íslandi eru átján. Þau starfa skv. lögum nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn og reglugerð nr. 283/1994 um héraðsskjalasöfn. Þau eru sjálfstæðar skjalavörslustofnanir á vegum sveitarfélaga og lúta faglegu eftirliti Þjóðskjalasafns Íslands. Hlutverk héraðsskjalasafna er í meginatriðum fjórþætt, þ.e. viðtaka skjala afhendingarskyldra aðila og einkaaðila, skráning og aðgengi að safngögnum bæði á rafrænum formi og […]


